miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Iðnaðarmannakonfekt

Fylling :

  • axað Cote d'Or súkkulaði (56 %)
  • 1/2 dl rjómi
  • 1/2 dl koníak ( Hennessyl)
  • 50g smjör
  • Odense súkkulaðidropar
Aðferð :
  • Bræðið saman 300g af súkkulaði yfir vatnsbaði.
  • Sjóðið rjómann og blandið honum saman við brædda súkkulaðið í smá skömmtum.
  • Blandið koníaki og smjöri saman við og hrærið þangað til allt er komið saman.
  • Hellið blöndunni í t.d. eldfast mót, setjið yfir hana elshúsfilmu og kælið yfir nótt
  • Fyllinguna má einnig móta í kúlur og húða með súkkulaði

Steyping í súkkulaðimót :

  • Súkkulaðið er brætt og steypt í form og berst er að nota Odense súkkulaðidropa.
  • Ef skreyta á molanna er einna best að bræða hvítt súkkulaði með og sprauta yfir formin fyrst með því.
  • Súkkulaðinu er svo hellt af formið sett inn í kæli og tekið út eftir 5-10 mín. eða eftir að súkkulaðið er harnað í forminu.
  • Því næst er koníaksfyllingin sett í.
  • Súkkulaðinu er hellt yfir og formið hrist vel til að losa um loftbólur sem leynist í forminu.
  • Þá er súkkulaðið skafið af
  • Formið sett aftur inn í kæli í 10-20 mín eða þar til súkkulaðið er orðið hart og molarnir losaðir úr forminu

Engin ummæli: