Sýnir færslur með efnisorðinu Súpur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Súpur. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Kjúklingasúpa

Hráefni :
  • Laukur
  • Gulrætur
  • Sellerí eða purrulaukur
  • Sellerírót
  • Hvítlaukur
  • Kjúklingaleggir
  • Vatn
  • Pipar, chiliduft, kjúklingakraftur og Herbal salt.
Aðferð :
  • Skar 1 lauk í grófa bita (ca.8), setti í pott.
  • Bætti út í því sem var til í ísskápnum sem voru gulrætur (slatti), sellerí ( Púrrulaukur ), sellerírót, FULLT af hvítlauk (ein 7 eða 8 rif) og svo kjúklingaleggina.
  • Svo hellti ég 2 lítrum af vatni yfir.
  • Kryddaði með smá pipar, smá chilliduft, smá kjúklingakraft og herbal-salt.
  • Sjóða í klukkutíma

Grænmetissúpa

Hráefni :

Það grænmeti sem til er í ísskápnum eða eftirfarandi :

  • Púrrulaukur
  • Kartöflur
  • Rófa
  • Sveppir
  • Gulrætur
  • Paprikka ( rauð eða græn)
  • Lauk ( ég nota laukduft )
  • Hvítlaukur ( eða hvítlauksduft, nóg af því )
  • Blómkál
  • Sætar kartöflur
  • Brokkolí

2-2,5 L af vatni

Grænmetiskraftur

Krydd :

  • Salt
  • Pipar
  • Chilipipar
  • Cayennepipar
  • Ítölsk kryddblanda

Aðferð :

  • Steikja púrrulaukinn, lauk og hvítlauk í smá olíu.
  • Léttsteikja það grænmeti sem á að nota
  • Bæta við vatninu og grænmetiskraftinum
  • Krydda að vild.
  • Láta sjóða í 30 - 60 mín.
  • Hægt að hafa kjúkling með , þá er hann skorinn í bita og soðinn með en þá er suðan að lámarki ( 40 ) mín.
  • Gott að hafa með þessu hrísgrjón eða pasta
  • Borið fram með góðu brauði
  • Doritosflögur settar úti í, ásamt sýrðum rjóma og salsa sósu.