Sýnir færslur með efnisorðinu Bakstur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Bakstur. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Frönsk Súkkulaðiterta

Hráefni:

  • 150g smjör
  • 150g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 165g Sykur ( 2 dl )
  • 4 eggjarauður
  • 4 eggjahvítur
  • 80g hveiti ( 1,5 dl )

Aðferð :

  • Hitið ofninn í 175°C.
  • Stífþeytið eggjahvíturnar.
  • Smyrjið smelluform (22 cm ) að innan með smjöri, stráið síðan hveiti yfir það.
  • Bræðið 150g af súkkulaði, hrærið saman við smjör og sykur þar til það verður ljóst og létt.
  • Blandið eggjarauðunum saman við einni í einu og hrærið vel á milli þeirra.
  • Blandið saman bræddu súkkulaði og hveiti saman.
  • Blandið síðan eggjahvítunum varlega saman við.
  • Bakið í 30-35 mín við 175°C og kælið kökuna ( á að vera blaut inní).
Krem

Hráefni :

  • 200g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 4 msk smjör
  • 1 msk Grand Marnier
  • 1,5 dl ristaðar möndluflögur eða heslihnetuflögur

Aðferð :

  • Hitið saman smjör, súkkulaði og Grand Marnier og smyrjið því á kökuna.
  • Fallegt er að skreyta kant kökunnar með ristuðum heslihnetuflögum eða möndluflögum.
  • Berið kökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
  • Verði ykkur að góðu :)

Vatnsdeigsbollur

Hráefni :

  • 80 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 100 g hveiti
  • 2 – 3 egg

Aðferð :

  • Stilla ofninn á 200°c.
  • Vatn og smjör sett í pott og soðið.
  • Hveiti sett úti og hrært með SLEIF.
  • Taka pottin af og hræra þangað til deigið sleppir sleifinni og pottinum.
  • Láta degið kólna dálítið.
  • 1 egg sett í einu. Hrært vel á milli.
  • Skvettur af deginu sett á plötu með ágætu bili.
  • Platan sett í miðju ofnsins.
  • Hitað í 20 – 30 mín.
  • ATH. Má alls ekki opna fyrstu 15 mín. því þá vilja þær falla saman.
  • Klippa í bollurnar þegar þær eru teknar út.

mánudagur, 2. júlí 2007

Pavlova með súkkulaðifrauð

Er með þessa köku í kvöld.

Pavlova með súkkulaðifrauði

Undibúningstími : 50 mín
Eldunartími : 45 mín
Fyrir 10-12

Botnar :

6 eggjahvítur
335g sykur
2 1/2 msk kakó

Fylling
200g dökkt suðusúkkulaði, brætt
6 eggjarauður
1 msk skyndikaffi
1 msk vatn
625 ml rjómi, þeyttur

1. Hitið ofninn í 150 °C. Setjið bökunarpappír á 4 bökunarplötur og gerið hringi með 22 cm þvermáli á 3 þeirra en dragið beinar línur með 3 cm millibili á fjórðu.
Stífþeytið eggjahvíturnar í þurri skál og bætið síðan sykrinum í smám saman og þeytið á fullum krafti á meðan.. Þeytið í 5-10 mín eða þangað til sykurinn er uppleystur og marengsinn þykkur og gljáandi. Blandið syktuðu kakóinu varlega í.

2. Skiptið marengsinum í 4 hluta. Breiðið 3 þeirra innan hringjanna á plötunum 3. Setjið fjórða hlutann í rjómasprautu með sléttri túðu og sprautið eftir línunum á fjórðu plötunni. Bakið í 45 mín eða þangað til marengsinn er ljósgullinn og stökkur að utan.
Gætið þess að lengjurnar verði ekki ofbakaðar.
Slökkvið á ofninum og látið marengsinn kólna í honum með opna hurðina.

3. setjið brætt súkkulaðið í skál og og þeytið eggjarauður og kaffiduft, uppleyst í vatninu saman við. Þeytið þar til mjúkt. Blandið þeytta rjómanum varlega saman við og hrærið þar til allt hefur samlagast vel.
Kælið frauðið í ísskáp þar til það er kalt og þykkt.

4. Setjið einn af marengsbotninum á kökufat og breiðið 1/3 af frauðinu yfir. Setjið annan botninn ofan á og helminginn frauðsins ofan á hann.
Setjið þriðja botninn þar ofan á og það sem eftir er af frauðinu ofan á og með hliðunum. Rennið hnífi eftir kökuröndinni til að jafna frauðið.
Brjótið eða skerið marengslengjurnar í 5 cm búta og raðið bitunum allan hringinn eftir kökuhliðinni og látið þá festast í frauðinu.
Staflið afganginum ofan á.

Stráið kakói yfir og kælið í ísskáp þar til kakan hefur stífnað.