Sýnir færslur með efnisorðinu Daglegt líf. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Daglegt líf. Sýna allar færslur

föstudagur, 26. október 2007

Hæ aftur




Búin að vera í dágóðu fríi. Ekki mikið búin að vera að föndra né neitt annað. Gigtin að plaga mig þannig að ég hef eiginlega ekki gert neitt nema hugsa um mig og strákinn minn og svo hvíla mig þegar Kiddi er heima. Nú er þetta hinsvegar allt að koma , búin að fara á einn skrapphitting og er á leiðinni á jólakortahitting á laugardaginn ( jamm þið heyrðuð rétt jólakortahitting ).
Búin að gera nokkur kort bæði saumuð og skröppuð og er að senda frá mér bunka af afmæliskortum sem ég hef verið að trassa að gera ( einfaldlega ekki komið mér í þetta og svo gleymt þeim inn á milli, hendurnar bólgnar og þá geri ég ekki neitt og þegar góðir dagar koma þá er þetta ekki efst í kollinum mínum ).

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Tiltekt og veikindi

Jebb enn á ný er ég veik. Frekar ömurlegt en þetta hlýtur að líða hjá eins og allt annað :) Held allavegana í vonina um það.

Meðan ég er svona slöpp og lasin þá henti ég inn öllum þessum uppskriftum sem eru hér fyrir neðan. Langar svo að skrappa en hef hreinlega ekki orkuna í það. Sem betur fer er Kiddi heima í fæðingarorlofi þannig að ég get leyft mér að liggja eins og skata og taka því rólega.

laugardagur, 28. júlí 2007

Kominn á skrið

Langt síðan ég hef sett eitthvað hingað inn. Hef ekki verið að gera neitt og allt hefur verið við það sama hjá okkur fjölskyldunni.

Mér tókst að gera eina síðu um daginn, á eftir að leggja lokahönd á hana og þá munuð þið geta séð hana hér inni.

Víkingur Atli er loksins farinn að skríða, byrjaði á því í gær og er núna að æfa sig. Hann þýtur um allt í göngugrindinni þannig að það er ágætt að hann læri líka að koma sér á milli staða án hennar.
Hann er farinn að þyngjast aftur. Hann var vigtaður seinasta miðvikudag, þá var hann orðinn 8280g og 70 cm.

Hann varð 11 mánuða seinasta þriðjudag. Nóttina áður flutti hann yfir í sitt eigið herbergi og líkar það mjög vel. Steinsefur alla nóttina. Til að byrja með hafði ég barnapíutæki þannig að ég heyrði í honum. Það var samt stór galli á tækinu. Það nam bara hljóð en ekki andardrátt. Víkingur Atli getur ekki sofið kyrr og er því á fleygiferð um rúmið sitt alla nóttina ( kannski eins og mamma sín haha sem snýr sér ótalsinnum yfir nóttina, hún er þó hætt að snúa sé þannig að hún liggi með höfuðið þar sem fæturnir eiga ða liggja haha ). Ég heyrði því skruðnina hálfa nóttina. Í gær ákvað ég að hafa bara angelcarið í gangi ( nemur hreyfingar og lætur vita ef engin hreyfing ( nemur andardrátt ) kemur í 20 sek. ) og það dugði. Ég svaf og allir ánægðir hehe.

Kiddi er núna að hjóla strandlengjuna í kringum Rvk og ætlar að enda heima hjá foreldrum sínum, þetta eru rúmir 40 km. Smá æfing fyrir hálfmaraþon sem hann ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu.

sunnudagur, 24. júní 2007

10 mánaða í dag



Litli Víkingurinn minn er orðinn 10 mánaða. ótrúlegt. Hann er svo mikil dúlla. Hann er þvílíkt sprækur fyrir utan veikindi. Hann er síbrosandi og "talar" á fullu, hefur frá mörgu að segja. Því miður þá skil ég bara eiginlega ekkert af því sem hann segir nema þegar hann segir mamamamamamama og ef hann er reiður þá kemur MAMMA !!! Hann segir líka amma og ava og ohhh hehe.
Hann er farinn að klappa saman lófunum og líka iljunum, vinka ( samt ekki alltaf, oft þegar viðkomandi sem er að fara er farinn hehe ).
Það nýjasta er að brosa rosalega mikið svo það sjáist í tönnslurnar sem eru komnar og kreista aftur augun og krumpa saman nefið eins og sést á myndinni hérna.
Við höfum því ákveðið að baka pönnukökur eða vöfflur í tilefni dagsins og laga til hér heima, hmmm spennandi það síðarnefnda.

mánudagur, 18. júní 2007

Helgin

Við vorum á fullu alla helgina.

Á föstudaginn áttum við brúðkaupsafmæli og Kiddi bauð mér út að borða en Víkingur Atli fór í dekur til móðursystur minnar.

Við náðum svo í Víking á laugardagsmorgninum og fórum í kvennahlaupið ásamt mömmu, Hildi og Dagnýju. Víkingur Atli og Dagný Björt sváfu nú kvennahlaupið af sér en við þrjár sem vorum fótgangandi gengum 5 km, nokkuð ánægð með mig að geta það. Fórum svo í kaffi til Ebbu á eftir en þar voru þau Kiddi og Hósý tengdamamma að horfa á kvennalandsleikinn í fótbolta. Pínu hallærislegt að hafa kvennahlaupið og kvennalandsleik í fótbolta á sama tíma, en það var ekkert við því að gera ( ég hefði ekki mætt á leikinn en ábyggilega einhverjar sem þurftu að velja).




Í gær var svo 17. júní og þá var skundað í bæinn. Snúðurinn okkar fékk bangsimonblöðru og við áttum íslenskan fána sem hann var með og veifaði ótt og títt. Hann skemmti sér konunglega og við líka. Ótrúlega gaman að fara loksins í bæinn með sitt barn í stað þess að vera barnlaus. Draumurinn orðinn að veruleika. Loksins getum við hætt að hugsa " svona ættum við að vera " þegar maður horfir á par með barn eða börn.
Fórum svo í skírnarveislu seinni part 17. júní til Huldu Hrannar og Hafsteins. Kristjana Rögn var skírð og var hún nokkuð ánægð með það. Nafnið fékk hún stuttu eftir fæðinguna þannig að það er komin reynsla á nafnið, hæfir þessari prinsessu nokkuð vel.
Set inn myndir seinna í dag.

föstudagur, 15. júní 2007

5 ÁR í dag...

... síðan við Kiddi gengum í heilagt hjónaband :) Fyrir 5 árum síðan var ég í hárgreiðslu á þessum tíma, síðan kom vinkona mín heim til að farða mig og önnur vinkona mína var með mér allan tíman til að taka myndir og svoleiðis :) Þetta var yndislegur dagur. Tíminn leið ekkert smá hratt og ég gleymdi eiginlega alveg að borða, hafði eiginlega enga lyst ( ætli spenningurinn hafi ekki verið það mikill ). Athöfnin byrjaði kl. fimm í Garðakirkju. Afi minn var svaramaður minn og við vorum keyrð heiman frá mömmu í Bleikum Cadilac, bílstjórinn var hún Soffía, mamma vinkonu hans Kidda. Soffía átti þennan flotta bíl.
Veislan var svo haldin í sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Æðislegur salur. Það var dekkað á borð fyrir 130 manns, 120 manns mættu svo í veisluna ( sumir höfðu ekki fyrir því að láta vita fyrirfram að þeir kæmu ekki ). Við vorum með 3 rétta hlaðborð. Mamma, amma mín og nokkrar frænkur mínar bjuggu til matinn. Tengdaforeldrar mínir, móðurafi og amma hans Kidda og móðurbróðir hans skáru niður kjötið sem var á hlaðborðinu. Vinkona mömmu og systir hennar bjuggu til brúðkaupskökuna, ótrúlega góða pavlovu ( sem er kakan mín , alltaf gerð í afmælum og öðrum veislun hjá okkur ). Vorum með borðvín , gos og vatn með matnum. Koníak með kaffinu og kökuni og þegar líða tók á kvöldið og fólk byrjaði að dansa þá var komið með bjór.
Vinkonur mínar sem voru í hljómsveit sem spilaði írsk lög spilaði fyrir dansi en afi hans Kidda spilaði á harmóniku á undan, þar á með spilaði hann brúðarvalsinn :)
Við gætum ekki verið ánægðari með veisluna. Nú eru fimm ár liðin, mikið búið að ganga á. Sem betur fer hefur það styrkt hjónaband okkar enn frekar í stað þess að það hafi flosnað upp.
Víkingur Atli ætlar að fara í næturgistingu til móðursystur minnar svo við Kiddi getum haft það kósý í kvöld.

laugardagur, 9. júní 2007

Kúkur í koppinum og næturgisting



Víkingur Atli prófaði koppinn í dag og kúkaði og pissaði í hann 2x. Hihi hann var ekkert smá stoltur af sér ;)
Hann verður í heimsókn hjá ömmu sinni í nótt þannig að við foreldrarnir munum eiga kósý kvöld saman.

föstudagur, 8. júní 2007

Loksins

Þá erum við að koma til. Ég er öll að skána af kvefinu mínu og Víkingur litli Atli hóstar ekki jafn mikið og hann gerði.
Vonandi er þetta að verða gott svo við getum notið góða veðursins.

fimmtudagur, 7. júní 2007

Endalaus veikindi

Þá er ég sjálf orðin veik. Víkingur er enn veikur, Kiddi var veikur ( er það samt eiginlega enn en fór samt í vinnunna ) og nú er ég orðin veik. Seinustu skipti þegar fjölskyldan ( svo gaman að geta talað um fjölskylduna : ) ) hefur öll lagst í einhverja pest þá höfum við Kiddi skipst á að vera veik, fyrst hann svo ég. Ágætt að við séum það ekki samtímis því þá getur sá sem frískur séð um drenginn á meðan, nema hvað ég þarf auðvitað að sjá um hann á daginn þegar ég er veik. Ekki mikið um barnapössun þegar fjölskyldan býr svona "langt" í burtu og allt fullorðna fólkið í vinnu á daginn.

þriðjudagur, 5. júní 2007

Mislingabróðir og barkabólga

Þá er komin niðurstaða yfir dularfullu veikindunum hans Víkings Atla í seinustu viku. Hann var með mislingabróður. Ágætt að vita það svona eftir á ;)

Fór með hann í blóðprufu í morgun og lét hlusta hann í leiðinni, því hann hefur verið að hósta ljótum hósta undanfarinn sólarhring. Þá er hann kominn með barkabólgu !!!!! Elsku litli karlinn minn. Nú er hann kominn á stera í 3 daga og vonandi flýtir það fyrir batanum. Það er eins gott að ég var ekki búin að boða mömmuhitting hér heima því í seinustu 3 skiptin sem ég hef ætlað að bjóða mömmuhópnum þá hefur hann veikst.

Fór í dag í litir og föndur til að kaupa blingsteina til að klára síðu sem ég er með á borðinu. Kassarnir með öllum steinunum voru búnir, nema 2 með pínulitlum hjörtum í mörgum litum. Þannig að ég keypti nokkra poka með steinum í mismunandi litum og stærðum. Nú ætti ég að geta klárað þessa síðu :)

mánudagur, 4. júní 2007

Helgin

Helgin okkar var fín, svona í heildina. Auðvitað fer ekki allt eins og maður hefði viljað að það færi en það er ekkert við því að segja , allavegana ekki svona eftir á :)
Lagaði aðeins til í skrappinu mínu. Sé að ég þarf að koma á betra skipulagi á blómin mín og borðana. Blómin taka allt of mikið pláss eins og þau eru í dag og ég sé ekki alveg nógu vel hvernig blóm ég á , sömu söguna er að segja um borðana. Allt of mikið drasl í þessari skúffu. Þarf að koma þessu betur fyrir einhvernveginn.

Er að komast í gegnum fyrsta mánuðinn í lífi Víkings Atla. Þarf að prófa að prenta út myndirnar sem eru bara til á barnalandi. Það töpuðust nokkrir af fyrstu dögunum hans Víkings Atla, frekar sárt. Þar eru meðal annars myndir af því þegar ég klæddi hann í fyrstu fötin ( eftir að hann var búinn að vera í hitakassa í nokkra daga ) og svo fyrsta baðið hans ( sem er frekar sárt að missa ).

fimmtudagur, 31. maí 2007

Kominn heim í bólið sitt

Víkingur Atli er búinn að vera á spítala síðan á þriðjudaginn. Ástæðan er óskýr en hann er búinn að vera með háan hita frá því á mánudaginn og engin skýring fyrir hitanum. Vegna hans sjúkrasögu þorðu læknarnir ekki annað en halda honum inni í eftirliti meðan ástandið á honum var svona. Líkalega var þetta einhver veira en einu einkennin var hiti . Í gæreftirmiðdag eftir stærðarinnar sprengju frá neðri hlutanum varð hann hitalaus og varð aftur litli grallarspóinn og glaðværi víkingurinn.

Við fengum svo að fá gullið okkar heim í dag. Seinustu daga hefur hann ekki sofið nema í 30-60 mín í einu 2x á dag ( hann sem er vanur að sofa í 2 tíma 2x á dag ). Hann sofnaði í bílnum á leiðinni heim eða um hálf eitt og er enn sofandi, nú í rúminu sínu. Greinilega gott að vera kominn heim. Vonandi borðar hann vel í kvöld en hann hefur verið ansi lystarlaus seinustu daga, eiginlega bara neitað að borða nema ávexti.

Starfsfólkið á lyfjadeildinni er alltaf jafn ljúft og gull af manni, gerir allt fyrir mann og meira til. Svo gott að hafa barnið sitt þarna inn þegar maður á annað borð er með veikt barn. Eina sem má bæta er matarmál aðstandenda en ég hef nú heyrt að það sé í góðum farvegi. Nú fá foreldrar barna sem liggja inni í 2 vikur eða lengur kort til að framvísa og fá þá matarmiða á ódýrara verði en áður, líka fá foreldrar barna sem leggjast oft eða reglulega inn á spítalann samskonar kort. Enn þó er ekki búið að koma með lausn fyrir helgar og kvöldunum. Foreldrar þurfa greinilega ekki að borða þá LOL.

mánudagur, 28. maí 2007

Annar í hvítasunnu

Fékk að sofa aðeins út í morgun. Vaknaði svo við hlátur í þeim feðgum frammi í stofu. Víkingur er reyndar með smá hita, sennilega tanntaka. Allavegana vona ég að hann sé ekki að veikjast neitt mikið. Erum búin með veikindin í bili.

Vonandi get ég sest niður í dag og skrappað 1-2 síður. Prentaði út helling af skissum í gær þannig að ég ætti að fá einhverja hugmynd hvernig ég vil hafa síðurnar mínar.