Sýnir færslur með efnisorðinu Matur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Matur. Sýna allar færslur

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Frönsk Súkkulaðiterta

Hráefni:

  • 150g smjör
  • 150g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 165g Sykur ( 2 dl )
  • 4 eggjarauður
  • 4 eggjahvítur
  • 80g hveiti ( 1,5 dl )

Aðferð :

  • Hitið ofninn í 175°C.
  • Stífþeytið eggjahvíturnar.
  • Smyrjið smelluform (22 cm ) að innan með smjöri, stráið síðan hveiti yfir það.
  • Bræðið 150g af súkkulaði, hrærið saman við smjör og sykur þar til það verður ljóst og létt.
  • Blandið eggjarauðunum saman við einni í einu og hrærið vel á milli þeirra.
  • Blandið saman bræddu súkkulaði og hveiti saman.
  • Blandið síðan eggjahvítunum varlega saman við.
  • Bakið í 30-35 mín við 175°C og kælið kökuna ( á að vera blaut inní).
Krem

Hráefni :

  • 200g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 4 msk smjör
  • 1 msk Grand Marnier
  • 1,5 dl ristaðar möndluflögur eða heslihnetuflögur

Aðferð :

  • Hitið saman smjör, súkkulaði og Grand Marnier og smyrjið því á kökuna.
  • Fallegt er að skreyta kant kökunnar með ristuðum heslihnetuflögum eða möndluflögum.
  • Berið kökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
  • Verði ykkur að góðu :)

Grænmetislasanga

Tómatpastasósa

Hráefni :

  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • Slatti af hvítlauk
  • Ítölsk pottagaldrablanda

Tómatpastasósa

Aðferð :

  • Blanda þessu saman

Hvít sósa

Hráefni :

  • 1 dós kotasæla eða rjómaostur eða hvort tveggja 50 / 50

Hvít sósa

Aðferð :

  • Blanda saman

Taka það grænmeti sem á að fara í lasagna og létt steikja það , ef kartöflur, brokkóli eða blómkál fer í réttinn þá á að sjóða það í smá stund.
Blandar tómatpastasósunni yfir grænmetið.
Síðan er tómatpastasósunni og hvítu sósunni sett inn á milli laga af lasagnaplötum í eldfast mót.
Þetta er sett inn í ofn og hitað þar til það er fulleldað.

Linsu lasagne

Rauð sósa

Hráefni :

  • 2-3 gulir laukar
  • 3-4 gulrætur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 2 dl rauðar linsur
  • 2-3 dl vatn
  • 1 dós skornir tómatar
  • 1 dós tomato sauce
  • 5-6 msk. tomato pure
  • 1 grænmetisteningar
  • ólífuolía
  • salt, svartur pipar, sykur, basilika, oregano, paprikuduft, chilli, cayanne pipar.

Rauð sósa

Aðferð :

  • Laukurinn er skorinn smátt.
  • Gulræturnar rifnar
  • hvítlaukurinn rifinn eða pressaður.
  • Látið mýkjast á pönnu í ólífuolíu.
  • Linsunum bætt við ásamt vatni, grænmetistening og tómatgumsi.
  • Látið sjóða þar linsurnar eru tilbúnar (35-45 mín).
  • Kryddað (örlítill sykur dregur fram tómatbragðið).

Hvít sósa

Hráefni :

  • 300-400 g kotasæla
  • 3 dl rifinn ostur (hluti geymdur þar til síðast)
  • 200 g frosið spínat
  • salt, hvítur pipar, múskat.

Hvít sósa

Aðferð :

  • Spínatið er látið þiðna og vatnið kreyst vel úr því.
  • Öllu blandað saman og kryddað.

  • Lasagne plötum er raðað á botnin í eldfast form.
  • Því næst er sett rauð sósa, plötur, hvít sósa og plötur.
    Þetta er endurtekið þar til formið er fullt.
    Endað er á plötum, ofan á þær er stráð rifnum osti og að lokum er 1 dl af mjólk hellt yfir allt saman.
    (Hér má frysta aukaformið sem er búið til því að uppskriftin er aldrei gerð minni en tvöföld.)
    Bakað í ofni í ca. 40 mínútur.

Gúrkustafir með Hoisinsósu

Hráefni :

Gúrka

Hoisinsósa :

  • 1/2 dl hoisin-mauk ( tilbúin kínversk kryddsósa )
  • 1/4 dl sesaMolía
  • 1/2 dl sykur
  • 1/2 dl japönsk sojasósa
  • 2 msk semsamfræ

Aðferð :

Gúrka er skorin í stafi

Sósa :

  • Blandið sósuna
  • Berið fram í skál með gúrkunni og gjarnan litlum ósætum pönnukökum eða góðu brauði

Bakaðir Sveppir

  • Hráefni :

  • 8 stórir sveppir ( eða fleiri litlir )
  • 50g smjör
  • 4 hvítlauksrif
  • 2 tsk sítrónusafi
  • Steinselja
  • 2 msk hakkaðar kryddjurtir

  • Aðferð :

  • Raðið sveppunum í eldfast mót, með fótunum upp.
  • Bræðið smjörið með hvítlauknum
  • Bætið steinselju út í
  • Hellið yfir sveppina
  • Bakið í hálftíma við 175°C
  • Berið fram heitt.

Kryddbrauð

Hráefni :
  • 3 bollar Haframjöl
  • 3 bollar hveiti ( eða spelt )
  • 2 bollar sykur ( eða hrásykur )
  • 2 tsk lyftiduft ( eða vínsteinsduft )
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk kakó
  • 1 tsk negull
  • 1 tsk engifer
  • 3 bollar mjólk ( hægt að nota soyamjólk, hrísmjólk eða möndlumjólk )

Aðferð :

  • Allt sett í skál og blandað saman
  • Hitað í ofni á 200°C Í 1 klst.

Kjúklingasúpa

Hráefni :
  • Laukur
  • Gulrætur
  • Sellerí eða purrulaukur
  • Sellerírót
  • Hvítlaukur
  • Kjúklingaleggir
  • Vatn
  • Pipar, chiliduft, kjúklingakraftur og Herbal salt.
Aðferð :
  • Skar 1 lauk í grófa bita (ca.8), setti í pott.
  • Bætti út í því sem var til í ísskápnum sem voru gulrætur (slatti), sellerí ( Púrrulaukur ), sellerírót, FULLT af hvítlauk (ein 7 eða 8 rif) og svo kjúklingaleggina.
  • Svo hellti ég 2 lítrum af vatni yfir.
  • Kryddaði með smá pipar, smá chilliduft, smá kjúklingakraft og herbal-salt.
  • Sjóða í klukkutíma

Grænmetissúpa

Hráefni :

Það grænmeti sem til er í ísskápnum eða eftirfarandi :

  • Púrrulaukur
  • Kartöflur
  • Rófa
  • Sveppir
  • Gulrætur
  • Paprikka ( rauð eða græn)
  • Lauk ( ég nota laukduft )
  • Hvítlaukur ( eða hvítlauksduft, nóg af því )
  • Blómkál
  • Sætar kartöflur
  • Brokkolí

2-2,5 L af vatni

Grænmetiskraftur

Krydd :

  • Salt
  • Pipar
  • Chilipipar
  • Cayennepipar
  • Ítölsk kryddblanda

Aðferð :

  • Steikja púrrulaukinn, lauk og hvítlauk í smá olíu.
  • Léttsteikja það grænmeti sem á að nota
  • Bæta við vatninu og grænmetiskraftinum
  • Krydda að vild.
  • Láta sjóða í 30 - 60 mín.
  • Hægt að hafa kjúkling með , þá er hann skorinn í bita og soðinn með en þá er suðan að lámarki ( 40 ) mín.
  • Gott að hafa með þessu hrísgrjón eða pasta
  • Borið fram með góðu brauði
  • Doritosflögur settar úti í, ásamt sýrðum rjóma og salsa sósu.

Söndru döðlur

Hráefni :

  • Döðlur
  • Marsipan
  • Núggat
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Opnið döðlurnar
  • Takið steininn úr
  • Setjið marsipan og núggat inn í staðin.
  • Hjúpið með súkkulaði.

Sælkera konfektkúlur

Hráefni:

  • 200g Ren Ra marsipan
  • 100g Anton Berg karmellumolar
  • Grand Marnier eftir smekk
  • Brætt ljóst súkkulaði

Aðferð :

  • Myljið karmellumolana niður í hrærivél og blandið þeim saman við marsipan og Grand Marnier.
  • Varast ber að hafa blönduna of blauta.
  • Kælið
  • Mótið kúlur
  • Húðið þær með ljósu súkklulaði og skreytið að vild.

Salthnetur í konfekt

Hráefni :

  • 200g Ren Ra marsipan
  • 100g nougat
  • 50g hakkaðar salthnetur
  • Brætt ljóst/dökkt súkkulaði

Aðferð :

  • Rúllið saman marsipan niður með kökukefli eftir smekk.
  • Gerið það sama við núgatið og hafið það í sömu stærð.
  • Leggið núggatið ofan á masipanið og sáldrið hökkuðum salthnetum á annan helmingin.
  • Þrýstið hnetutunum ofan í núggatið og brjótið svo hinn helminginn yfir.
  • Rúllið yfir með kökukefli í u.þ.b. 5-8 mm þykkt og skerið í ferninga.
  • Kælið molana, húðið með súkkulaði og skreytið að vild.

Regbogakúlur

Hráefni :

  • Marsipan
  • Núggat
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Skerið núggatið í litla teninga.
  • Fletjið út bita af marsipaninu milli fingranna,
  • vefjið utanum núggatið og mótið kúlu.
  • Hjúpið með súkkulaði.
  • Til skemmtunar fyrir börnin má nota marsipan í nokkrum litum.

Möndluskellur

Hráefni :

  • Heilar möndlur
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Skerið möndlurnar niður í nálar.
  • Blandið út í sem minnst magn af bræddu súkkulaði en nægilegt til að hylja möndlurnar.
  • Setjið skellur í konfektform með teskeið og látið storkna.

Kobbakúlur

Hráefni :

  • 100 gr núggat
  • 35 gr valhnetur
  • 100 gr konfektmarsipan
  • 50 gr flórsykur
  • 50 gr rúsínur
  • 100 gr rjómasúkkulaði
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Setjið allt nema hjúpinn í matvinnsluvél og hakkið mjög vel saman.
  • Mótið kúlur
  • Kælið í 10-15 mín.
  • Hjúpið og veltið upp úr valhnetumylsnu.

Kanil-kókoskúlur

Hráefni :

  • 200 g þurrkaðir papaya- og ananas bitar
  • 1 dl kókosmjöl
  • 6-8 Nóa kókosbitar
  • 100 g Suðusúkkulaði, brytjað
  • 100 g pekanhnetur
  • 2-3 msk. mjúkt smjör
  • 1/2-1 tsk. kanill
  • Dökkur ópal hjúpur

Aðferð :

  • Setjið allt í matvinnsluvél og hrærið þar til allt verður að þykkum massa.
  • Mótið kúlur úr massanum
  • Hjúpið þær með hjúpnum.
  • Stráið kókosmjöli yfir.
  • Geymið í lokuðu íláti.

Iðnaðarmannakonfekt

Fylling :

  • axað Cote d'Or súkkulaði (56 %)
  • 1/2 dl rjómi
  • 1/2 dl koníak ( Hennessyl)
  • 50g smjör
  • Odense súkkulaðidropar
Aðferð :
  • Bræðið saman 300g af súkkulaði yfir vatnsbaði.
  • Sjóðið rjómann og blandið honum saman við brædda súkkulaðið í smá skömmtum.
  • Blandið koníaki og smjöri saman við og hrærið þangað til allt er komið saman.
  • Hellið blöndunni í t.d. eldfast mót, setjið yfir hana elshúsfilmu og kælið yfir nótt
  • Fyllinguna má einnig móta í kúlur og húða með súkkulaði

Steyping í súkkulaðimót :

  • Súkkulaðið er brætt og steypt í form og berst er að nota Odense súkkulaðidropa.
  • Ef skreyta á molanna er einna best að bræða hvítt súkkulaði með og sprauta yfir formin fyrst með því.
  • Súkkulaðinu er svo hellt af formið sett inn í kæli og tekið út eftir 5-10 mín. eða eftir að súkkulaðið er harnað í forminu.
  • Því næst er koníaksfyllingin sett í.
  • Súkkulaðinu er hellt yfir og formið hrist vel til að losa um loftbólur sem leynist í forminu.
  • Þá er súkkulaðið skafið af
  • Formið sett aftur inn í kæli í 10-20 mín eða þar til súkkulaðið er orðið hart og molarnir losaðir úr forminu

Karrý-mangochutney-kjúklingur

Hráefni :

  • 5-6 kjúklingabringur eða 1 heill bitaður og beinlaus
  • 4 rif hvítlaukur
  • 1 peli rjómi (nota alltaf kaffirjóma)
  • 1/2 krukka mangóchutney (ég nota sweet mangoc. frá Rajah)
  • 1 msk karrý (ég nota oft meira)
  • Kóríanderlauf (má sleppa, ég hef aldrei notað það)

Aðferð :

  • Skerðu kjúklingabitana í litla bita, kryddaðu með salti og pipar og steiktu á pönnu í örlítilli olíu.
  • Þegar kjúklingurinn er næstum gegnsteikturbættu þá söxuðum hvítlauk, rjóma, mangóchutney og karrý út á pönnuna.
  • Blandaðu öllu vel saman.
  • Láttu malla í ca 15 mín.
  • Stráðu kóríanderlaufi yfir undir lokin.
  • Berðu fram með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði.

Vatnsdeigsbollur

Hráefni :

  • 80 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 100 g hveiti
  • 2 – 3 egg

Aðferð :

  • Stilla ofninn á 200°c.
  • Vatn og smjör sett í pott og soðið.
  • Hveiti sett úti og hrært með SLEIF.
  • Taka pottin af og hræra þangað til deigið sleppir sleifinni og pottinum.
  • Láta degið kólna dálítið.
  • 1 egg sett í einu. Hrært vel á milli.
  • Skvettur af deginu sett á plötu með ágætu bili.
  • Platan sett í miðju ofnsins.
  • Hitað í 20 – 30 mín.
  • ATH. Má alls ekki opna fyrstu 15 mín. því þá vilja þær falla saman.
  • Klippa í bollurnar þegar þær eru teknar út.

Hveitikökur Kristrúnar

Hráefni :

  • 5 bollar hveiti eða 4 bollar hveiti og einn af rúgmjöli
    ( 2,5 dl spelt og 2,5 dl rúgmjöl)
  • 3 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 msk sykur
  • 1 msk smjör
  • 3 dl köld mjólk
  • 1-2 egg

Aðferð :

  • Hnoðið fljótt saman.
  • Flatt út í mátulega stórar kökur (12-18 stk).
  • Bakað á þurri pönnu, ekki á hæsta hita (4-5 af 6).
  • Látið í stafla á meðan bakað er (þá haldast þær mjúkar) og svo í plastpoka.
  • Best er að frysta kökurnar ef það á að geyma þær lengur en 1 dag.

Pizzudeig

Hráefni :

  • 15g pressuger
  • 1 1/4 dl volgt vatn
  • 3 1/2 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk sykur
  • 1 1/2 msk matarolía

Aðferð :

  • Hellið öllu í eina skál
  • Látið hefast í 30 mín
  • Hitið við 180°C í 15-20 mín