fimmtudagur, 16. ágúst 2007

Fyrsta baðið

Hér er síða um fyrsta baðið hans Víkings Atla. Myndin er reyndar tekin þegar hann fór í bað nr. 2 en ég setti hann í fyrsta baðið. Myndirnar af því hafa glatast því miður en við tókum það upp á myndband. Vonandi er það til enn.

  1. Blái pp með baðinu er frá Carol wilson og mig minnir að ég hafi fengið hann í Föndru.
  2. Hvíti pp fékk ég í föndurbúð í múlunum.
  3. Dökk blái og munstraði pp er frá chatterbox.
  4. Fyrirsögnin er gerð með sizzixstöfum.
  5. Myndin er tekin 18. september 2006 en þá var hann tæplega mánaðargamall.

föstudagur, 10. ágúst 2007

Mömmustrákur


Litli mömmustrákurinn minn. Hérna er hann nýkominn úr baði og kominn í náttfötin sín með þessa sætu nátthúfu :) Algjör rúsína.
  • Munstraði pp og sá brúni ( undir myndinni ) er frá American Craft.
  • Olívugræni pp er frá Bazil sem og pp sem ég notaði í hjörtun.
  • Hjörtun eru gerð eftir cb frá Fancy Pants.
  • Blómið átti ég , minnir að að sé gerviblóm úr Europris.
  • Borðin keypti ég í saumnálinni í Kópavogi
  • Titillinn er sizzixstafir, grafiti
  • Litlu blómin eru cuttlebugmót sem ég nota í sizzixið mitt.

miðvikudagur, 8. ágúst 2007

Tiltekt og veikindi

Jebb enn á ný er ég veik. Frekar ömurlegt en þetta hlýtur að líða hjá eins og allt annað :) Held allavegana í vonina um það.

Meðan ég er svona slöpp og lasin þá henti ég inn öllum þessum uppskriftum sem eru hér fyrir neðan. Langar svo að skrappa en hef hreinlega ekki orkuna í það. Sem betur fer er Kiddi heima í fæðingarorlofi þannig að ég get leyft mér að liggja eins og skata og taka því rólega.

Frönsk Súkkulaðiterta

Hráefni:

  • 150g smjör
  • 150g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 165g Sykur ( 2 dl )
  • 4 eggjarauður
  • 4 eggjahvítur
  • 80g hveiti ( 1,5 dl )

Aðferð :

  • Hitið ofninn í 175°C.
  • Stífþeytið eggjahvíturnar.
  • Smyrjið smelluform (22 cm ) að innan með smjöri, stráið síðan hveiti yfir það.
  • Bræðið 150g af súkkulaði, hrærið saman við smjör og sykur þar til það verður ljóst og létt.
  • Blandið eggjarauðunum saman við einni í einu og hrærið vel á milli þeirra.
  • Blandið saman bræddu súkkulaði og hveiti saman.
  • Blandið síðan eggjahvítunum varlega saman við.
  • Bakið í 30-35 mín við 175°C og kælið kökuna ( á að vera blaut inní).
Krem

Hráefni :

  • 200g Cote d'Or súkkulaði (56%)
  • 4 msk smjör
  • 1 msk Grand Marnier
  • 1,5 dl ristaðar möndluflögur eða heslihnetuflögur

Aðferð :

  • Hitið saman smjör, súkkulaði og Grand Marnier og smyrjið því á kökuna.
  • Fallegt er að skreyta kant kökunnar með ristuðum heslihnetuflögum eða möndluflögum.
  • Berið kökuna fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
  • Verði ykkur að góðu :)

Grænmetislasanga

Tómatpastasósa

Hráefni :

  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • Slatti af hvítlauk
  • Ítölsk pottagaldrablanda

Tómatpastasósa

Aðferð :

  • Blanda þessu saman

Hvít sósa

Hráefni :

  • 1 dós kotasæla eða rjómaostur eða hvort tveggja 50 / 50

Hvít sósa

Aðferð :

  • Blanda saman

Taka það grænmeti sem á að fara í lasagna og létt steikja það , ef kartöflur, brokkóli eða blómkál fer í réttinn þá á að sjóða það í smá stund.
Blandar tómatpastasósunni yfir grænmetið.
Síðan er tómatpastasósunni og hvítu sósunni sett inn á milli laga af lasagnaplötum í eldfast mót.
Þetta er sett inn í ofn og hitað þar til það er fulleldað.

Linsu lasagne

Rauð sósa

Hráefni :

  • 2-3 gulir laukar
  • 3-4 gulrætur
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 2 dl rauðar linsur
  • 2-3 dl vatn
  • 1 dós skornir tómatar
  • 1 dós tomato sauce
  • 5-6 msk. tomato pure
  • 1 grænmetisteningar
  • ólífuolía
  • salt, svartur pipar, sykur, basilika, oregano, paprikuduft, chilli, cayanne pipar.

Rauð sósa

Aðferð :

  • Laukurinn er skorinn smátt.
  • Gulræturnar rifnar
  • hvítlaukurinn rifinn eða pressaður.
  • Látið mýkjast á pönnu í ólífuolíu.
  • Linsunum bætt við ásamt vatni, grænmetistening og tómatgumsi.
  • Látið sjóða þar linsurnar eru tilbúnar (35-45 mín).
  • Kryddað (örlítill sykur dregur fram tómatbragðið).

Hvít sósa

Hráefni :

  • 300-400 g kotasæla
  • 3 dl rifinn ostur (hluti geymdur þar til síðast)
  • 200 g frosið spínat
  • salt, hvítur pipar, múskat.

Hvít sósa

Aðferð :

  • Spínatið er látið þiðna og vatnið kreyst vel úr því.
  • Öllu blandað saman og kryddað.

  • Lasagne plötum er raðað á botnin í eldfast form.
  • Því næst er sett rauð sósa, plötur, hvít sósa og plötur.
    Þetta er endurtekið þar til formið er fullt.
    Endað er á plötum, ofan á þær er stráð rifnum osti og að lokum er 1 dl af mjólk hellt yfir allt saman.
    (Hér má frysta aukaformið sem er búið til því að uppskriftin er aldrei gerð minni en tvöföld.)
    Bakað í ofni í ca. 40 mínútur.

Gúrkustafir með Hoisinsósu

Hráefni :

Gúrka

Hoisinsósa :

  • 1/2 dl hoisin-mauk ( tilbúin kínversk kryddsósa )
  • 1/4 dl sesaMolía
  • 1/2 dl sykur
  • 1/2 dl japönsk sojasósa
  • 2 msk semsamfræ

Aðferð :

Gúrka er skorin í stafi

Sósa :

  • Blandið sósuna
  • Berið fram í skál með gúrkunni og gjarnan litlum ósætum pönnukökum eða góðu brauði

Bakaðir Sveppir

  • Hráefni :

  • 8 stórir sveppir ( eða fleiri litlir )
  • 50g smjör
  • 4 hvítlauksrif
  • 2 tsk sítrónusafi
  • Steinselja
  • 2 msk hakkaðar kryddjurtir

  • Aðferð :

  • Raðið sveppunum í eldfast mót, með fótunum upp.
  • Bræðið smjörið með hvítlauknum
  • Bætið steinselju út í
  • Hellið yfir sveppina
  • Bakið í hálftíma við 175°C
  • Berið fram heitt.

Kryddbrauð

Hráefni :
  • 3 bollar Haframjöl
  • 3 bollar hveiti ( eða spelt )
  • 2 bollar sykur ( eða hrásykur )
  • 2 tsk lyftiduft ( eða vínsteinsduft )
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk kanill
  • 1 tsk kakó
  • 1 tsk negull
  • 1 tsk engifer
  • 3 bollar mjólk ( hægt að nota soyamjólk, hrísmjólk eða möndlumjólk )

Aðferð :

  • Allt sett í skál og blandað saman
  • Hitað í ofni á 200°C Í 1 klst.

Kjúklingasúpa

Hráefni :
  • Laukur
  • Gulrætur
  • Sellerí eða purrulaukur
  • Sellerírót
  • Hvítlaukur
  • Kjúklingaleggir
  • Vatn
  • Pipar, chiliduft, kjúklingakraftur og Herbal salt.
Aðferð :
  • Skar 1 lauk í grófa bita (ca.8), setti í pott.
  • Bætti út í því sem var til í ísskápnum sem voru gulrætur (slatti), sellerí ( Púrrulaukur ), sellerírót, FULLT af hvítlauk (ein 7 eða 8 rif) og svo kjúklingaleggina.
  • Svo hellti ég 2 lítrum af vatni yfir.
  • Kryddaði með smá pipar, smá chilliduft, smá kjúklingakraft og herbal-salt.
  • Sjóða í klukkutíma

Grænmetissúpa

Hráefni :

Það grænmeti sem til er í ísskápnum eða eftirfarandi :

  • Púrrulaukur
  • Kartöflur
  • Rófa
  • Sveppir
  • Gulrætur
  • Paprikka ( rauð eða græn)
  • Lauk ( ég nota laukduft )
  • Hvítlaukur ( eða hvítlauksduft, nóg af því )
  • Blómkál
  • Sætar kartöflur
  • Brokkolí

2-2,5 L af vatni

Grænmetiskraftur

Krydd :

  • Salt
  • Pipar
  • Chilipipar
  • Cayennepipar
  • Ítölsk kryddblanda

Aðferð :

  • Steikja púrrulaukinn, lauk og hvítlauk í smá olíu.
  • Léttsteikja það grænmeti sem á að nota
  • Bæta við vatninu og grænmetiskraftinum
  • Krydda að vild.
  • Láta sjóða í 30 - 60 mín.
  • Hægt að hafa kjúkling með , þá er hann skorinn í bita og soðinn með en þá er suðan að lámarki ( 40 ) mín.
  • Gott að hafa með þessu hrísgrjón eða pasta
  • Borið fram með góðu brauði
  • Doritosflögur settar úti í, ásamt sýrðum rjóma og salsa sósu.

Söndru döðlur

Hráefni :

  • Döðlur
  • Marsipan
  • Núggat
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Opnið döðlurnar
  • Takið steininn úr
  • Setjið marsipan og núggat inn í staðin.
  • Hjúpið með súkkulaði.

Sælkera konfektkúlur

Hráefni:

  • 200g Ren Ra marsipan
  • 100g Anton Berg karmellumolar
  • Grand Marnier eftir smekk
  • Brætt ljóst súkkulaði

Aðferð :

  • Myljið karmellumolana niður í hrærivél og blandið þeim saman við marsipan og Grand Marnier.
  • Varast ber að hafa blönduna of blauta.
  • Kælið
  • Mótið kúlur
  • Húðið þær með ljósu súkklulaði og skreytið að vild.

Salthnetur í konfekt

Hráefni :

  • 200g Ren Ra marsipan
  • 100g nougat
  • 50g hakkaðar salthnetur
  • Brætt ljóst/dökkt súkkulaði

Aðferð :

  • Rúllið saman marsipan niður með kökukefli eftir smekk.
  • Gerið það sama við núgatið og hafið það í sömu stærð.
  • Leggið núggatið ofan á masipanið og sáldrið hökkuðum salthnetum á annan helmingin.
  • Þrýstið hnetutunum ofan í núggatið og brjótið svo hinn helminginn yfir.
  • Rúllið yfir með kökukefli í u.þ.b. 5-8 mm þykkt og skerið í ferninga.
  • Kælið molana, húðið með súkkulaði og skreytið að vild.

Regbogakúlur

Hráefni :

  • Marsipan
  • Núggat
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Skerið núggatið í litla teninga.
  • Fletjið út bita af marsipaninu milli fingranna,
  • vefjið utanum núggatið og mótið kúlu.
  • Hjúpið með súkkulaði.
  • Til skemmtunar fyrir börnin má nota marsipan í nokkrum litum.

Möndluskellur

Hráefni :

  • Heilar möndlur
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Skerið möndlurnar niður í nálar.
  • Blandið út í sem minnst magn af bræddu súkkulaði en nægilegt til að hylja möndlurnar.
  • Setjið skellur í konfektform með teskeið og látið storkna.

Kobbakúlur

Hráefni :

  • 100 gr núggat
  • 35 gr valhnetur
  • 100 gr konfektmarsipan
  • 50 gr flórsykur
  • 50 gr rúsínur
  • 100 gr rjómasúkkulaði
  • Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Aðferð :

  • Setjið allt nema hjúpinn í matvinnsluvél og hakkið mjög vel saman.
  • Mótið kúlur
  • Kælið í 10-15 mín.
  • Hjúpið og veltið upp úr valhnetumylsnu.

Kanil-kókoskúlur

Hráefni :

  • 200 g þurrkaðir papaya- og ananas bitar
  • 1 dl kókosmjöl
  • 6-8 Nóa kókosbitar
  • 100 g Suðusúkkulaði, brytjað
  • 100 g pekanhnetur
  • 2-3 msk. mjúkt smjör
  • 1/2-1 tsk. kanill
  • Dökkur ópal hjúpur

Aðferð :

  • Setjið allt í matvinnsluvél og hrærið þar til allt verður að þykkum massa.
  • Mótið kúlur úr massanum
  • Hjúpið þær með hjúpnum.
  • Stráið kókosmjöli yfir.
  • Geymið í lokuðu íláti.

Iðnaðarmannakonfekt

Fylling :

  • axað Cote d'Or súkkulaði (56 %)
  • 1/2 dl rjómi
  • 1/2 dl koníak ( Hennessyl)
  • 50g smjör
  • Odense súkkulaðidropar
Aðferð :
  • Bræðið saman 300g af súkkulaði yfir vatnsbaði.
  • Sjóðið rjómann og blandið honum saman við brædda súkkulaðið í smá skömmtum.
  • Blandið koníaki og smjöri saman við og hrærið þangað til allt er komið saman.
  • Hellið blöndunni í t.d. eldfast mót, setjið yfir hana elshúsfilmu og kælið yfir nótt
  • Fyllinguna má einnig móta í kúlur og húða með súkkulaði

Steyping í súkkulaðimót :

  • Súkkulaðið er brætt og steypt í form og berst er að nota Odense súkkulaðidropa.
  • Ef skreyta á molanna er einna best að bræða hvítt súkkulaði með og sprauta yfir formin fyrst með því.
  • Súkkulaðinu er svo hellt af formið sett inn í kæli og tekið út eftir 5-10 mín. eða eftir að súkkulaðið er harnað í forminu.
  • Því næst er koníaksfyllingin sett í.
  • Súkkulaðinu er hellt yfir og formið hrist vel til að losa um loftbólur sem leynist í forminu.
  • Þá er súkkulaðið skafið af
  • Formið sett aftur inn í kæli í 10-20 mín eða þar til súkkulaðið er orðið hart og molarnir losaðir úr forminu

Karrý-mangochutney-kjúklingur

Hráefni :

  • 5-6 kjúklingabringur eða 1 heill bitaður og beinlaus
  • 4 rif hvítlaukur
  • 1 peli rjómi (nota alltaf kaffirjóma)
  • 1/2 krukka mangóchutney (ég nota sweet mangoc. frá Rajah)
  • 1 msk karrý (ég nota oft meira)
  • Kóríanderlauf (má sleppa, ég hef aldrei notað það)

Aðferð :

  • Skerðu kjúklingabitana í litla bita, kryddaðu með salti og pipar og steiktu á pönnu í örlítilli olíu.
  • Þegar kjúklingurinn er næstum gegnsteikturbættu þá söxuðum hvítlauk, rjóma, mangóchutney og karrý út á pönnuna.
  • Blandaðu öllu vel saman.
  • Láttu malla í ca 15 mín.
  • Stráðu kóríanderlaufi yfir undir lokin.
  • Berðu fram með hrísgrjónum, salati og hvítlauksbrauði.

Vatnsdeigsbollur

Hráefni :

  • 80 g smjör
  • 2 dl vatn
  • 100 g hveiti
  • 2 – 3 egg

Aðferð :

  • Stilla ofninn á 200°c.
  • Vatn og smjör sett í pott og soðið.
  • Hveiti sett úti og hrært með SLEIF.
  • Taka pottin af og hræra þangað til deigið sleppir sleifinni og pottinum.
  • Láta degið kólna dálítið.
  • 1 egg sett í einu. Hrært vel á milli.
  • Skvettur af deginu sett á plötu með ágætu bili.
  • Platan sett í miðju ofnsins.
  • Hitað í 20 – 30 mín.
  • ATH. Má alls ekki opna fyrstu 15 mín. því þá vilja þær falla saman.
  • Klippa í bollurnar þegar þær eru teknar út.

Hveitikökur Kristrúnar

Hráefni :

  • 5 bollar hveiti eða 4 bollar hveiti og einn af rúgmjöli
    ( 2,5 dl spelt og 2,5 dl rúgmjöl)
  • 3 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 msk sykur
  • 1 msk smjör
  • 3 dl köld mjólk
  • 1-2 egg

Aðferð :

  • Hnoðið fljótt saman.
  • Flatt út í mátulega stórar kökur (12-18 stk).
  • Bakað á þurri pönnu, ekki á hæsta hita (4-5 af 6).
  • Látið í stafla á meðan bakað er (þá haldast þær mjúkar) og svo í plastpoka.
  • Best er að frysta kökurnar ef það á að geyma þær lengur en 1 dag.

Pizzudeig

Hráefni :

  • 15g pressuger
  • 1 1/4 dl volgt vatn
  • 3 1/2 dl hveiti
  • 1/2 tsk salt
  • 1/2 tsk sykur
  • 1 1/2 msk matarolía

Aðferð :

  • Hellið öllu í eina skál
  • Látið hefast í 30 mín
  • Hitið við 180°C í 15-20 mín

laugardagur, 4. ágúst 2007

Töffari

Þessi mynd var tekin 13. september 2006. Víkingur næstum 3ja vikna gamall.
Hann er í fystu sokkunum sem hann fékk í sængurgjöf, fótboltasokkar sem hann fékk frá Hildi og Axel. Buxurnar fékk hann í sængurgjöf frá Önnu Maríu og samfellan fékk hann í sængurgjöf frá Halla og Sigrúnu.

Blómin eru frá prima ( minnir mig ).
Tölurnar eru splitti sem ég fékk í RAK eitt sinn.
Borðann keypti ég í saumnálinni.
Litlu hvítu blómin keypti ég af Huldu P eitt sinn.
Grunnpp er hvítur frá Canson
Hringpp er frá american Crafts, man ekki hvað hann heitir.
Ljós blár og dökk brúnn bazzil pp.
Titillinn er gerður úr Sizzix stöfum, graffiti.

Þessi síða tekur þátt í helgaráskorun hjá henni Huldu P. Lo er frá Becky

Moster

Ömmusystir mín er á landinu. Ég var svo mikið hjá henni á sumrin þegar ég var unglingur. Nú er hún hér að heimsækja ömmu og afa og auðvitað okkur hin líka.

Gerði því eina síðu henni til heiðurs :)

Þetta er bazill pp og pp frá rob and bob.
Rikrak borðinn er úr saumnálinni.
Stimplarnir ( dútlið ) eru fancy pants stimplar 12x12.
Cb er frá bazzil.

Þessi mynd er tekin 3. ágúst ( fyrir ári síðan ). Moster kom þá hingað til landsins til að sjá gullmolann minn.