miðvikudagur, 13. júní 2007

Verslunarleiðangur

Fór í smá verslunarleiðangur í dag. Keypti eftirfarandi :

  • Glær geisladiskahulstur í Rekstarvörum til að geyma blómin í.
  • Kertakransar í Europris. Tek blómin af krönsunum í sundur, 9 blóm fyrir 99 kr.
  • Gerviblóm í Europris, stór blóm á góðu verði.
  • Box til að sortera vel borðana mína í nálinni á laugarveginum.
Það er hægt að versla fyrir skrappið á öðrum stöðum en bara í föndurbúðum og ef maður hugsar nógu mikið og aflar sér upplýsinga þá er margt hægt að nota til að nota í skrappið.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er svo gaman að kaupa svona dóterí í skrappið ;O)